Færsluflokkur: Bloggar

þvílík ókurteisi..

Hvað halda danir að þeir séu? Þeir eru allavegana ekki betri en íslendingar, svo mikið er víst. Þessi maður er náttúrulega illa haldinn af þjóðarrembingi og hroka. Ef Ísland væri bandaríkin væri búið að "púff púff". Segi ekki meir. Danir geta bara haldið sig heima hjá sér og litið í eigin barm.  Ég er brjáluð...;)


mbl.is Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af daglega lífinu

Nú er ég hætt í bili að æsa mig yfir ástandinu hér á landinu okkar. Mig tekur samt sárt að sjá að fólkið sem við völdum til að stjórna landinu skuli ekki hlusta á kjósendur sína. Mér finnst þetta svo mikill tvískinnungsháttur. Þau tala og tala og láta sig allt og alla varða en um leið og búið er að kjósa þau í stjórn þá reynast þau bara hugsa um sjálf sig og hætta að hugsa um kjósendurna. Auðvitað skil ég það að þau geta ekki hoppað á eftir öllu sem sagt er en nú er þjóðin búin að standa 7 laugardaga í röð og kalla á þau. Ég trúi bara ekki að þau ætli bara að láta allt vera eins og það er. Að þau ætli ekki að breyta neinu. Þau verða að láta siðblinda manninn í seðlabankanum, hann davíð oddsson, fara að sigla sinn sjó. Hann má bara ekki lengur vera viðloðandi Ísland. Hann heldur að hann sé landsins eina von og hagar sér þannig. BURT MEÐ DAVÍÐ ODDSON.

En úr daglega lífinu er það að frétta að allir eru hressir. Strákarnir mínir eru yndislegur. Það er svo gaman að Agli Steingrími, hvað hann er farinn að tala fullorðinslega, um daginn var hann að segja bróður sínum að hann mætti ekki róta í dótinu og klikkti út með að segja við hann Hauk Leo að "svona væri nú bara lífið".  Ég á náttúrulega alveg sérstaklega yndisleg börn;)


það var loksins..

að einhver gerði eitthvað af viti. Þetta er það sem þarf til að ríkisstjórnin vakni og fatti að þau eru ekki að vinna í umboði þjóðarinnar.  Þó svo að mér líki ekki neitt sérstaklega vel við hana Valgerði Sverrisdóttur og myndi alls ekki vilja sjá hana í ríkisstjórn þá er stjórnarandstaðan að svara kalli þjóðarinnar með þessum aðgerðum.


mbl.is Vantrauststillaga komin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaus hringavitleysa

Ég er orðin svo leið á þessari ríkisstjórn. Þau gera ekkert annað en að tala í hringi og tala illa um hvort annað. Þessi ríkisstjórn er greinilega ekki hæf í að stjórna landinu. Það besta sem þau myndu gera núna er að boða til nýrra kosninga.  Í þjóðfélaginu hefur myndast mikil vantrú og vantraust á ríkisstjórnina okkar og ef þau bæru hag lands og þjóðar fyrir brjósti myndu þau víkja.  Það er bara ekki eðlilegt að þeir sem bera ábyrgð á efnahagshruninu fái að spila með þessa peninga sem nú eru að koma inní landið í formi lána frá IMF og nágrannalöndum. Þau eiga ekki að fá tækifæri til að rústa landinu endanlega. Það fyrsta sem þau eiga gera til að öðlast traust þjóðarinnar er að víkja honum Davíð Oddssyni úr embætti og nr 2 sem þau eiga að gera er að láta hana Ingibjörgu vera forsætisráðherra.

Þetta er mín skoðun!


Uppgjöf...

það er kominn uppgjafartónn í hugsanir mínar þegar ég hugsa um ráðamenn íslensku þjóðarinnar. Það er búið að skipuleggja hver fjöldamótmælin á fætur öðru og það er eins og stjórnvöld hafi ekki orðið vör við þau. Þessir blessuðu ráðherrar og aðrir ráðamenn sitja bara í sínum fílabeinsturni og halda að allt sé í lagi.  ÞAÐ ER EKKI ALLT ALLT Í LAGI.  Eru þau ekki að hlusta á þjóðina? Eru þau bæði blind og heyrnalaus?  Ég þoli bara ekki þessa hrokafullu afstöðu að þau viti best.  Þau eru ekki að gera það sem þjóðin vill. Þjóðin vill að þau axli ábyrgð og þjóðin vill líka að davíð oddsson fari bara eitthvert þar sem hvorki heyrist til hans eða sést.  Það eru allir komnir með uppí kok á þessu fólki og kominn tími til að þau axli ábyrgð á ástandinu og víki.  Núna ætti bara að mynda stjórn með besta fólkinu úr hverjum flokki. Ég vildi að það væri hægt. Íslenska þjóðin ætti að fá að kjósa fólk í ríkisstjórn en ekki flokka.  Við ættum að fá að kjósa besta fólkið, burtséð frá því í hvaða flokki það er.  En þetta er bara mín skoðun og kannski svolítið draumkennd en hvað er hægt að gera annað en að láta sig dreyma á tímum sem þessum;)

Ekki rasa um ráð fram

það er svo mikið meira sem fylgir aðild að Evrópusambandinu heldur en evran sem gjaldmiðill. Ísland kemur til með að missa alla sjálfsstjórn. Baráttan sem Íslendingar hafa háð fyrir sjálfstæði sínu er nú farin fyrir lítið ef Ísland gengur í Evrópusambandið.  Það skal engin ímynda sér að í þessu stóra regluverki sem eb er að við fáum að ráða einhverju.  Það hlýtur að vera hægt að fara einhverja aðra leið.

Ég er farin að sjá fyrir mér að Íslendingar verði eins og Sígaunar. Landlaus þjóð sem er dreifð út um allan heim. 


mbl.is Drög lögð að umsókn um ESB-aðild?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið vildi ég...

að helgarnar væru 3 dagar. Það væri svo notalegt.

Ég fylgdist með mótmælunum á austurvelli í sjónvarpinu í gær. Skömm að segja frá því að ég var ekki þar en ég var þar í anda. Mér fannst ræðurnar svo flottar og þær sögðu allt sem segja þarf. Ég skil ekki afhverju ríkisstjórnin situr enn eins og þrjóskur hundur. Heyrir hún ekki hvað fólkið í landinu vill? Ég veit að Geir H. Haarde fengi meira fylgi ef hann myndi nú taka af skarið og víkja honum Davíð Oddssyni úr Seðlabankanum.  Ég kaus Samfylkinguna í síðustu kosningum og var nú bara stolt af því. Mér leist svo vel á hana Ingibjörgu Sólrúnu. En ekki lengur. Hún er greinilega ekki með neinar sjálfstæðar skoðanir. Hún gerir bara eins og Sjálfstæðisflokkurinn segir henni að gera.  Og svo skil ég ekki hvað hún var að gera með þessu framboði í Öryggisráðið. Hélt hún virkilega að það myndi virka?? Nú væru vel þegnir milljarðarnir sem fóru í þessa vitleysu.  Mér finnst að Samfylkingin eigi að slíta stjórnarsamstarfinu og mynda ríkisstjórn með Vinstri grænum.  Því þó Ingibjörg hafi valdið mér vissum vonbrigðum held ég að hún gæti gert marga góða hluti með rétta fólkið með sér.  Er ekki kominn tími til að Sjálfstæðisflokkurinn hverfi frá stjórn þessa lands?


Steingrím J í ríkisstjórn

Það er mín skoðun núna og væntanlega margra í landinu. Það er kominn tími til að Sjálfstæðisflokkurinn skríði ofan í holuna sem hann kom uppúr og leyfi alvöru fólki að leiða okkur í gegnum þetta alvarlega ástand.


mbl.is Staðan er grafalvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

eins og kýrnar á vorin...

þannig er ég núna, eftir að ég virkjaði bloggið mitt aftur. Ég þarf svo mikið að fá að segja mína skoðun á landsmálunum.

Mér finnst hann Bjarni Harðarson aðdáunarverður og mættu fleiri taka hann sér til fyrirmyndar. Geir H. Haarde ætti að segja af sér sem og Davíð í seðlabankanum. Valgerður á að segja af sér og líka hann Árni M.

Núna vill ég bara sjá hann Steingrím J. í ríkisstjórn því þó hann sé kannski stundum heldur öfgafullur í skoðunum þá hefur hann sýnt að hann stendur og fellur með sínum orðum og gjörðum. Hann starfar af heilindum fyrir þjóðina.

Nú ríður á að Íslendingar standi saman og leyfi ekki núverandi ríkisstjórn að sitja í friði og vernda eigin hagsmuni.


Geir, þú ert að orðinn alveg sami hrokagikkur og Davíð Oddson

Jæja, nú er ég búin að fá nóg af ástandinu í landinu, ég er búin að fá nóg af aðgerðarleysi stjórnvalda. Nú finnst mér að ríkisstjórnin eigi að axla ábyrgð og segja af sér. Ég vil að við, íslendingar, fáum að kjósa okkur nýja stjórn og ég vill að Sjálfstæðisflokkurinn salti sjálfan sig, þeir ættu að fara í pásu og leyfa dugandi fólki að koma þjóðinni út úr þessari krísu.  Nú er kominn tími til að Davíð Oddsson hætti að stjórna landinu, hann kemur til með að gera það svo lengi sem Sjálfstæðisflokkurinn er í forsæti. Hann getur ekki sleppt takinu og hans flokksbræður leyfa honum að komst upp með allt. Barátta okkar íslendinga fyrir sjálfstæði er farin fyrir lítið ef menn eins og Davíð Oddson fá að valsa hér um og gera það sem þeim þóknast.

Bloggið mitt hefur verið í langri pásu og má segja að það hafi eiginlega aldrei komist almennilega af stað en nú verð ég bara að fá að segja mína skoðun. Ég get ekki lengur orða bundist.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband