þvílík ókurteisi..

Hvað halda danir að þeir séu? Þeir eru allavegana ekki betri en íslendingar, svo mikið er víst. Þessi maður er náttúrulega illa haldinn af þjóðarrembingi og hroka. Ef Ísland væri bandaríkin væri búið að "púff púff". Segi ekki meir. Danir geta bara haldið sig heima hjá sér og litið í eigin barm.  Ég er brjáluð...;)


mbl.is Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ef við hér heima reynum aðeins að kyngja fordómunum og þessari ofsa vörn, að þá sjáum við að maðurinn hefur nokkuð til síns máls.

Við erum búin að sitja hérna heima og horfa á frá því sjónarhorni, sáum bara útrás voða glöð. Á hinum endanum sat fólkið og upplifði innrás.

Er skrítið þó því hafi sárnað?

Baldvin Jónsson, 3.12.2008 kl. 11:52

2 identicon

"Þessi maður er náttúrulega illa haldinn af þjóðarrembingi og hroka".... sko, ef þú virkilega virkilega virkilega meinar þetta, þá verður þú bara að játa það að Íslendingar eru haldnir þessu líka margir hverjir. Nokkrir auðmenn, stjórnvöld og aðrir bera ábyrgð á þessu, þorri íslensku þjóðarinnar hefur ekkert breyst en margir dásömuðu og öfunduðust út í auðmenn. Ég skil svo vel reiði sumra og þessi pistill Sorensens inniheldur mikil sannleikskorn.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband