Föstudagur, 17. júlí 2009
Svartur dagur í sögu Íslands
Þykir líklegt að Jón Sigurðsson heitinn sé búinn að snúa sér nokkrum sinnum í gröfinni vegna þessa máls. Með þessari umsókn er verið að ónýta allt hans starf og hans elju við að gera íslendinga að sjálfstæðri þjóð.
Búið að sækja um ESB-aðild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Manni vöknar bara um augun að lesa um Þennan Jón
Finnur Bárðarson, 17.7.2009 kl. 14:45
ESB er félagshyggja og er frábær félagsskapur. Annað er bara bull.
Árni Björn Guðjónsson, 17.7.2009 kl. 15:08
Jón? Ertu að meina manninn sem flutti 22ja ára gamall til Danmerkur og bjó þar til æviloka?
Elvar (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:23
Finnur það kemur mér ekki ó óvart að maður sem ekki þekkir sögu okkar og fortíð betur skuli vilja svona ólmur inn í ESB.
Veit ekki alvag árni hvar þú finnur þessa félaghyggju í ESB.
Held samt að viðræðurnar verði til góðs og menn fá loksins að sjá hvað er í boði svo þeir geti gert upp hug sinn.
Sigurður Ingi Kjartansson, 17.7.2009 kl. 15:33
Elvar þú veist að Dalai Lama er mikilvægur fyrir Tíbet þrátt fyrir það að hann hafi ekki eitt stærstu hluta æafi sinnar þar, ég held að það sé alger óþarfi að gera lítið úr honum eða hans baráttu þótt hún hafi farið fram í Köben (sem var jú eiginlega höfuðborg okkar á þeim tíma)
Sigurður Ingi Kjartansson, 17.7.2009 kl. 15:37
Aðeins sá sem fæðist og býr í sínu landi alla sína ævi þekkir þjóð sína. Þá er ég ekki að setja út á þá sem ferðast á milli landa. Af hverju bjó hann í Danmörku? Fékk hann ekkert út úr því að búa í landinu ,,sínu"? Var Ísland of lítið fyrir hann? Ég, sem þekki þjóð mína, er ekki stoltur Íslendingur en þetta er samt landið mitt. Vonandi breytist hugsunarháttur landa minna.
Elvar (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 15:45
Takk fyrir Sigurður Ingi. Það er nú einu sinni þannig, eins og þú bendir á, að Jón þessi Sigurðsson barðist ötulli baráttu fyrir sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Og nú 91 ári eftir að Ísland fékk fullveldi þá á að afsala því aftur.
Erla J. Steingrímsdóttir, 17.7.2009 kl. 15:48
Ætli Jón Sigurðsson hafi ekki búið í Danmörku til að vinna sinni þjóð sem mest gagn samgönur voru þá aðrar en nú er. Vonandi að þessar aðildar viðræður standi stutt og samningur ef hann verður einhver þá verði hann kolfelldur, það mun af stýra þeirri miklu óvissu sem margir eru nú í.
Ragnar Gunnlaugsson, 17.7.2009 kl. 16:12
Svona er þetta bara:
ESB andstæðingar
Páll Blöndal, 17.7.2009 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.