Endalaus vitleysa

Ég rak augun í að ástæðan fyrir því að Sigmundur Davíð vill að þing verði rofið 12. mars sé svo ekki verði hætta á að Íslendingar gleymi afleiðingunum af (lélegri) efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins.  Stundum lítur út fyrir að þessi drengur sé fæddur í gær.  Man hann ekki eftir því að Framsóknarflokkurinn ber alveg jafn mikla ábyrgð á þessari efnahagsstjórn.

Þegar þessi strákur varð formaður Framsóknar og með hans fyrstu verkum var að segja að hann skyldi verja ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna falli þá hélt maður að kannski bæri hann hag þjóðarinnar fyrir brjósti.  En það hefur komið í ljós að eini hagurinn sem hann ber fyrir brjósti er sinn eigin.  Þannig lítur þetta út því hann hefur ekkert gert nema reyna að tefja fyrir starfi ríkisstjórnarinnar.  það liggja mörg og mikilvæg verk fyrir þessari ríkisstjórn og 11 dagar er ekki nógu langur tími til að þau vinnist vel.  Nú þegar þau er búin að koma Seðlabankanum á rétt ról þá vona ég að þau fari að einbeita sér að því sem skiptir máli og það er að koma heimilum og fyrirtækjum til hjálpar.  Í þessari röð.


mbl.is Vill rjúfa þing 12. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Tilboðið sem hann gaf var skýrt og að því gengu S og VG.

Ekkert hefur breyst í því sambandi, nema að S og VG hafa ekki staðið við það sem þau lofuðu að gera.

Gestur Guðjónsson, 2.3.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband