Mánudagur, 26. janúar 2009
Það er óásættanlegt að mynda þjóðstjórn með Sjálfstæðisflokkinn í forsæti
Sjálftæðisflokkurinn hefur sýnt að hann veldur því ekki að fara með forsæti á þessum erfiðu tímum. Ef Geir hefði stigið skrefið sem þurfti að stíga og verið sá maður sem þjóðin þurfti á halda nú í haust þá myndu málin horfa öðruvísi við nú. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn vanhæfur vegna þess að framundan eru formannsskipti í flokknum og þar mun eiga sér stað innbyrðis kosningarbarátta og það þjónar ekki hagsmunum þjóðarinnar á tímum þar sem eining þarf að ríkja með þeim er stjórna landinu.
Fundað um framhaldið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála, Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að vera með forystu í Þjóðstjórn.
Úrsúla Jünemann, 26.1.2009 kl. 15:28
Sæl Erna.
En það er víst venjan að sá stærsti byrji, svo koll af kolli .
Ég er sammála þér að Geir á ekki að leiða þetta ferli en lög eru lög.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:33
Ég segi bara eins og Halli og Laddi sögðu hér í den: Mér þætti gaman að sjá það!
Ef Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram við völd verður allt vitlaust. Þá fer fólk fyrst að sjá alvöru mótmæli.
Ibba Sig. (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:39
Forseti Íslands gefur þeim sem hann sýnist umboð til stjórnarmyndunarviðræðna. Það segir hvergi að það eigi að vera stærsti flokkurinn, og eins og ástandið er núna myndi það vera ávísun á geðveikustu mótmæli allra tíma.
Rúnar Þór Þórarinsson, 26.1.2009 kl. 15:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.