Fimmtudagur, 22. janúar 2009
Mótmæli..
Ég hef aldrei farið niður í bæ að mótmæla á þessum skipulögðu mótmælum undanfarið. En þó ég hafi ekki farið hef ég samt verið fylgjandi þeim. Þessar óeirðir sem nú eiga sér stað á Íslandi eru bein orsök þess að stjórnmálamenn virtu fólk ekki viðlits meðan á friðsömu mótmælunum stóð. Það er sorglegt að það þurfi ofbeldi til að það sé hlustað á okkur, fólkið í landinu. Nú er um að gera fyrir stjórnina að bregðast við áður en eitthvað verulega slæmt gerist. Þau geta ekki sofið sínum þyrnirósarsvefni lengur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.