Föstudagur, 26. júní 2009
Yfirlýsing Samtaka fullveldissinna varðandi Icesave
Vill vekja athygli á yfirlýsingu Samtaka fullveldissinna um Icesave samningana sem fer hér á eftir.
Samtök Fullveldissinna lýsa yfir andstöðu við fyrirliggjandi Icesave-samninga og lýsa undrun sinni á tilraunum ríkisstjórnarinnar til að hræða almenning og Alþingi með áróðri um einangrun þjóðarinnar frá alþjóðasamfélaginu verði samningarnir ekki samþykktir.
Samtök Fullveldissinna minna á skyldur ríkisstjórnar og Alþingis við æsku landsins og hvetur þingmenn til að minnast loforða sinna um að standa með þjóðinni í endurreisn landsins. Það er ekki gert með auknum skuldbindingum sem geta vegið að afkomu allra þegna hennar til frambúðar.
Alþingi ber skylda til að standa á rétti Íslands í Icesave-málinu og láta fara fram ítarlega úttekt á þeim þjóðréttarlegu atriðum sem það varðar. Í núverandi gerð stenst samningurinn ekki lög og milliríkjasamninga. Ákvæði EES samningsins og lög um Tryggingarsjóð Innstæðueigenda undanskilja ábyrgð ríkisins, sbr álit Ríkisendurskoðunar.
GREINAGERÐ MEÐ YFIRLÝSINGUNNI:
Icesave-samningatillögurnar sem nú liggja fyrir Alþingi fela í sér fjárskuldbindingar fram í tímann langt umfram það sem ríkissjóður getur tekið á sig, eru gerðar undir hótunum af hálfu ESB ríkja og eru í trássi við lög og milliríkjasamninga. Þær þýða að traust umheimsins á að landið geti áfram verið sjálfstætt og fullvalda ríki og staðið við skuldbindingar sínar gagnvart umheiminum mun dvína.
Íslenska ríkið ber ekki ábyrgð á skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og hefur Ríkisendurskoðandi staðfest það álit. Greiðsluskylda er aðeins að því marki sem eignir sjóðsins hrökkva til og hann verður ekki síðar krafinn um frekari greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.
Séu gerðir raunhæfir samningar um milliríkjasamstarf til þess hámarka verðmæti fallinna banka og koma til móts við innistæðueigendur getur Alþingi og forseti samþykkt þá, séu þeir í samræmi lög og gildandi samninga sem ríkin eru aðilar að. Núgildandi samningar og lög eru skýr hvað varðar innlánstryggingar gömlu íslensku bankaútibúanna og getur hver sá sem telur sig órétti beittan sótt sitt mál fyrir dómstólum og þarf því ekki atbeina Alþingis sem setti lög um innistæðutryggingar fyrir áratug.
Samtök Fullveldissinna harma þá stöðu sem landið er í og vilja að innstæðueigendur í Bretlandi og Hollandi fái sem mest af sínum innstæðum greiddar af eignum Landsbankans. Alþingi getur heimilað að nýir og raunhæfir samningar verði gerðir um Icesave sem Íslendingar geta ráðið við, og eru í samræmi við milliríkjasamninga og að háttum bandalagsþjóða, til þess að hámarka með samvinnu verðmæti eigna fallinna banka.
Í Stjórnarskránni er skýrt tekið fram að skattur verður ekki lagður á nema heimild hafi verið fyrir honum í lögum þegar þau atvik urðu sem ráða skattskyldu og að enginn aðili geti framselt eignir ríkisins. Fyrir núverandi og framtíðar skattgreiðendur liggja ekki frammi upplýsingar um hvernig tryggja eigi fjárframlög og leggja á skatta til að uppfylla ríkisábyrgð þeirra skuldbindinga sem Icesave-samningarnir kynnu að leiða af sér, þegar og ef á hana reynir.
Á hafréttarrástefnunni í Genf árið 1960 greiddu Vestur-Evrópulönd atkvæði gegn landhelgisútfærslu Íslands sem þá byggði gjaldeyristekjur sínar nær eingöngu á fiskútflutningi. Alþjóðadómstóllinn í Haag dæmdi landhelgisútfærsluna í 50 mílur ólögmæta. Árið 1972 neitaði Evrópubandalagið að samþykkja lagfæringu á fríverslunarsamning Íslands við bandalagið nema Íslendingar sættust við Breta og V-Þjóðverja í landhelgisdeilunni. Þá var svipaður hræðsluáróður viðhafður og nú en rættist ekki þó Alþingi stæði fast á rétti Íslands.
Harkaleg aðför ríkisstjórnar Bretlands að íslenskum bönkum og þjóðarhagsmunum stendur enn óbætt og er löngu orðið tímabært að móta kröfur og leita viðræðna um bætur fyrir hana. Að öðrum kosti nást ekki sættir milli Íslands og Stóra-Bretlands.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 22. júní 2009
Getur Ísland..
Aukafundur EFTA ef Ísland sækir um aðild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 22. maí 2009
Hrokafull yfirlýsing
Ég skil ekki afhverju þjóðin á að axla ábyrgð á útrás fárra manna sem fóru illa að ráði sínu og fjárfestu langt umfram getu. Nú á íslenska þjóðin að borga á meðan þessir menn eru bara í rólegheitunum á Cayman´s og gera grín að okkur. Það ætti nú bara fyrir löngu að vera búið að handtaka þessa menn. Þeir eiga bara að vera í fangelsi á meðan er verið að rannsaka þessi mál. Ótíndir glæpamenn fá sjaldnast að leika lausum hala á með verið er að rannsaka þá og afhverju ganga þeir þá lausir, þeir sem lögðu Ísland í rúst? Það vita allir hvað landið stendur illa, en það sem þessir ráðamenn þurfa að gera sér grein fyrir er að þjóðin er ekki í stakk búin til að ganga í ábyrðir fyrir þessum peningum ef við erum líka gjaldþrota. Nú þarf að treysta grunninn til að við sem byggjum þetta land getum staðið undir auknum álögum.
Langar til að taka það fram að heitið á þessari frétt var fyrst " þjóð í afneitun". En yfirskriftinni greinilega breytt í "framsóknarmenn í afneitun".
Framsóknarmenn í afneitun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 14. maí 2009
skref í rétta átt
Kannski notar hann þennan skatt til að gera tannlækningar barna og unglinga gjaldfrjálsar
Sykrað gos skattlagt? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 10. maí 2009
Grunaði ekki Gvend
Ákvörðun um ESB í höndum þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 1. maí 2009
Ofsóknir
Til rannsóknar hjá landlækni og Ríkisendurskoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 29. apríl 2009
Skilur hann ekki
Árni Johnsen segir skipulega unnið gegn sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
Skrá sig núna:)
Ósammála punktur is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 20. apríl 2009
Ólýðræðisleg Samfylking
Það vona ég að Vinstri grænir sigri þessar kosninar og Steingrímur J. verði forsætisráðherra til að þessi evrópuumræða verði sleginn útaf borðinu. Ég er reyndar mjög hrifinn af Jóhönnu Sigurðardóttur en þessi blinda evrópustefna hjá Samfylkingunni er bara, hreint út sagt, vitlaus. Ég held að þau ættu frekar að leggja vinnu í að bjarga okkur úr þessu ástandi sem þjóðin og landið er í. Meiri hluti landsmanna er á móti aðildarviðræðum og samt er Samfylkingin eitthvað að þrjóskast við þetta.
Ég hef frá því að ég man eftir mér ekki þolað Sjálfstæðisflokkinn en ég er bara hreinlega farinn að hallast aðeins í þá átt núna. Óska ríkissjórnin er sú að Vinstri grænir í forsæti myndi stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Þá getum við sofið róleg, þurfum ekki að vera andvaka yfir því að það verði búið að selja Ísland og auðlindirnar með þegar við vöknum að morgni.
Nú er mikil þörf á því að stjórnmálamennirnir okkar taki sig saman og standi vörð um landið og þjóðina.
Evrópustefnan verði á hreinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 20. apríl 2009
Þessi maður er brandari
Hann Ástþór er náttúrulega bara brandari, en hann má eiga það sem hann á og það er að hann kemur hreyfingu á hlutina og skapar umræðu um þá, sem kannski er ekkert endilega alltaf jákvæð en umræða samt.
Ástþór í Zetunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |