Miðvikudagur, 3. maí 2006
Ekki byrja að reykja
Það er aldrei að vita hvað gerist á morgun og enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Ég hef verið að berjast við reykinga-drauginn og hann er að hafa betur. Ég ætti nú ekki einu sinni að segja frá þessu, þetta er svo skammarlegt.
Ég vill bara að segja eitt við krakka í dag: EKKI BYRJA AÐ REYKJA. Það er ekki "cool" og það er ekki töff og þið þurfið ekki að reykja til að falla í hópinn. Í dag þykir það reyndar mjög hallærislegt að reykja, held ég.
Það að reykja skemmir ekki aðeins mann sjálfan heldur alla í kringum mann.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.