Sunnudagur, 19. mars 2006
Allt að koma
JÆJA..... Nú er ég loksins farin að sjá fyrir endann á öllu þessu eldhús dóti.
Þetta hefur nú tekið tímann sinn og á meðan hefur verið hálfgerður útilegu fílingur hérna á heimilinu. Borðað, með plasthnífapörum af plastdiskum, úrval af 1944 réttum hituðum í örbylgjuofninum (sem farinn er að syngja sitt síðasta;) En stendur samt fyrir sínu.
Tengdapabbi hefur verið alveg svakalega duglegur að hjálpa okkur, þetta hefði ekki gengið ef hann hefði ekki verið hér. Hann á alveg hrós skilið fyrir að nenna að vera hérna alltaf í öllum sínum frítímum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.